18apríl

Gellurnar sameinast !

Já, við höfum sameinast nokkrar skvísurnar, ég, Rósa Vigdís, Sigrún Ingveldur og Sigrún Björk, en við erum allar trukkagellur ! Við ákváðum því að búa til síðu saman sem á að fjalla um þetta starf okkar og hvernig er að vera stelpa í þessum bransa, erum duglegar að koma inn með myndir og svona og þetta er bara orðið heljarflott þó svo að við séum bara nýbúnar að opna.

Mæli endilega með því að þið kíkið á þessa síðu : www.gellursemtrukka.bloggar.is en hún er án efa HOT ! Ég mun samt halda áfram að sinna þessari síðu þó svo að hún hafi verið nokkuð dauð undanfarið, en það er bara vegna þess að við höfum verið að sinna hinni síðunni.

Með kveðju,
Linda Björk
18. apríl 2008 klukkan 22:09
Linda Björk Gunnarsdóttir
Engin athugasemd
25mars

Páskarnir á enda ..

Páskarnir voru æðislegir hjá okkur. Mamma og Kjartan komu á miðvikudagskvöldið og voru hérna frammá föstudagskvöld. Við elduðum okkur pizzu og þau löbbuðu uppá Súlur báða dagana, annarsvegar í leiðindarskyggni og hinsvegar í björtu.

Á föstudagskvöldið fórum við í heimsókn til tengdó. Víví, systir Steinó, og Campbell, kærastinn hennar, komu frá Skotlandi núna í vikunni. Það var mjög gaman að hitta þau, rosalega æðislegt par, kát og skemmtileg ! Á laugardaginn átti Sædís afmæli og við gáfum henni sleðajakka og vettlinga, og svo fórum við öll fjölskyldan uppá Víkurskarð að leyfa öllum að fara á sleða. Fórum með þrjá sleða og það var æði, dálítið kalt samt. Held að Víví og Cambell hafi bara þótt stuð, en hann hefur sjaldan eða aldrei farið á vélsleða. Þegar við komum heim var svo bara skriðið undir sæng og horft á vidjó.

Páskadagurinn hófst á því að við fengum okkur morgunmat og opnuðum svo páskaegg. Við Steinó opnuðum okkur saman eitt lítið Rís páskaegg, og geymdum Nóa eggin okkar. Við fórum svo þrjú, við og Sædís, á sleða. Fórum um hádegi uppá Fálkafell, Súlumýrar og nánast alveg uppá Súlur og það var bara gaman ! Mikill snjór, mikið af fólki á sleðum sem og gangandi, á brettum og slöngum, og mikið af jeppum og jeppafólki. Fengum geggjað veður, sól og nánast alveg logn og hitinn var bara rétt undir frostmarki. Komum heim um 18 og fórum í nautalundir með bernaise, frönskum og meðlæti hjá tengdó. 

Á Annan í Páskum höfðum við Sædís það bara rólegt heima, ætluðum á sleða aftur eitthvað svipað og daginn áður, en það var svo leiðinlegt skyggni og éljagangur. Steinó fór að vinna við að keyra gámum á gámalyftunni yfir í Strítu, það átti að sjálfsögðu að taka lítinn tíma, en eins og vanalega þegar hann vinnur á frídögum er alltaf eitthvað vesen og í þetta skiptið var gámalyftarinn bilaður. Þegar hann loks kom heim elduðum við hamborgarhrygg og höfðum það gott með páskaeggin uppí sófa !
25. mars 2008 klukkan 14:21
Linda Björk Gunnarsdóttir
2 athugasemdir
16mars

Viðbjóðslega helgi á enda !

Jáá, því miður get ég ekki beint sagt að þessi helgi hafi verið góð og ætla ég að blogga í tilefni þess. 

- Föstudagurinn byrjaði á því að það var e-ð voða vesen útaf reikningi frá Ríkisútvarpinu sem ég hafði ekki borgað. How great is that ? Mesta sóun á pening sem ég veit um, og þessi reikningur var ekki beint til að gleðja mig þó svo að helgin væri að koma. Vorukenni greið konunum sem eru að vinna þarna, eða bara fólkinu sem vinnur þarna almennt, því þau hljóta að vera orðin leið á öllu fólkinu sem hringir þarna inn og leyfir þeim að heyra það hversu pirrað fólk sé almennt að þurfa að borga af þessum leiðilegu stöðvum.

- Á laugardaginn fór Steinó á sleða. Hann laggði upp í leiðangur á öðrum Arctic Cat-inum okkar, M8, ásamt nokkrum köllum. Þeir voru á leið til baka þegar þeir ætluðu að kíkja e-ð aðeins lengra uppí fjallið og skoða, en ákváðu að koma við og taka bensín. Svo löggðu þeir aftur uppeftir, og viti menn, á leiðinni þangað kom svolítið uppá. Steinó kom heim og ég var að elda í mestu makindum að hlusta á góða tónlist og þá sagði hann : "Sleðinn okkar er ónýtur". Ég hélt hann væri bara að djóka og þetta ætti að vera voða fyndið, en nei, hann lenti á einhverju grjóti og sleðinn er allur kíttaður saman og skakkur. Sleðinn er svo vel ónýtur að hann er tryggingarmatur - ætlum að fara að vinna í því eftir helgi.

- Sunnudagsmorguninn byrjaði svo á því að við höfðum okkur út í þetta frábæra veður. Dúddi hljóp útum allt í sólinni og snjónum og við ókum svo af stað. Okkur fannst bíllinn eitthvað skrítinn strax svo ég tjékkaði á hlutunum, var hann ekki alveg bara á flötu farþegamegin að framan - frábært ! Svo við fórum á rúntinn á Fordinum okkar með ónýta sleðann okkar, og vorum að koma að gatnamótum, bíll á undan okkur sem við héldum að færi nú að beyja því hún var búin að vera svo lengi í beyjunni alveg stop, hún bara beygði ekki svo við negldum niður og það var hált í skugganum og við dúndruðum aftaná hana. Fordinn snérist og pallurinn er allur beyglaður, en að framan slapp hann alveg fyrir utan brotið stefnuljós.

Við höfum tekið þá ákvörðun að elda okkur ekki mat í kvöld, því það gæti kviknað í íbúðinni. Við höfum það í huga að fara niðrá Subway, kannski við förum bara á F8 svona úr því að hann er eina ótjónaða eða ökuhæfa tækið sem við eigum í augnablikinu.
16. mars 2008 klukkan 17:46
Linda Björk Gunnarsdóttir
Engin athugasemd
20febrúar

Eurovision 2008 ?

Já, á laugardagskvöldið er undankeppnin hérna á klakanum og ég ætla svo innilega að vona að Eurobandið komist áfram - lagið sem þau eru með er einfaldlega áberandi langflottast ! Það er með dansfílinginn alveg á hreinu, svo er svona pínu finnst mér þetta austurþjóðaþema í bakgrunninum og svo eru þau bara rosalega góðir söngvarar, taka þetta alvarlega. Mér fannst reyndar útgáfan svo flott þar sem þau mættu í fjólubláa outfittinu að ég varð hrikalega efins þegar ég heyrði ensku útgáfuna í fyrsta skipti. Mér fannst eins og það hefði bara verið tekið lagið og drepið það algjörlega.

Ég hef samt skoðað annarslagið youtube og fylgst með því hvað fólk er að segja um þetta lag. Í meiralagi eru dómarnir mjög góðir, fólk vill að lagið vinni undankeppnina hérna heima og mjög mörgum finnst þetta vera algjört sigurlag og vilja sjá Eurovision í Reykjavík 2009. Þetta hefur fólk allsstaðar úr heiminum verið að segja ! Það er mjög jákvætt. Mæli með því að þið kíkið á youtube og leitið að "Eurobandid" og þá kemur þetta allt. Svo er bara um að gera að gefa þeim atkvæði á laugardaginn, ég ætla að hringja svona 100 sinnum til þess að þurfa ekki að hlusta á eitthvað "heyheyhey hóhóhó" og svo snýst það við til að gera smá tilbreytingu þess á milli sem gellan með barbídúkkuröddina kemur og jaríjarí. Finnst alveg kominn tími til þess að við sendum ekki bara eitthvað djók út eina ferðina enn. Hafa komið mjög góð lög inná milli, en alltof mikið af einhverju rugli.

En fylgist vel með næstu daga, ætla að fara að henda inn fullt af nýjum myndum og það er klárlega komin tími til að uppdeita jólakönnunina um það hvað fólk eyðir miklum pening í jólagjafir - finnst ykkur þaggi ? Semsagt, ég ætla að fara að gera eitthvað spennó hérna inná, kannski breyta myndaalbúmunum líka - hver veit. Ætla að troða inn fleira fólki, máske einhverjum krílum, mögulega fleiri tenglum eða einhverju skemmtilegu.

En í lokin - kjósiði Eurobandið klárlega í ár !
I´m out ! Drullist þið svo til að kvitta eða koma með einhverjar skoðanir hérna.
20. febrúar 2008 klukkan 23:14
Linda Björk Gunnarsdóttir
5 athugasemdir
15febrúar

Pósturinn með lélega þjónustu ?

Ég bara verð að tala um þjónustu Póstsins, swy Ingi minn.

Fyrsta dæmi : Um daginn pantaði ég flísgalla á Dúdda svo honum yrði ekki kalt í snjónum. Ég pantaði hann frá Theo, og fékk mjög góða þjónustu þar. Hún fór með gallann samdægurs á Póstinn, og ætlaði semsagt að senda hann frá Reykjavík til Akureyrar. Hún fékk þau svör hjá Póstinum að þetta gæti tekið svona 1-3 daga. Okei, ekkert mál með það. Eftir 3 daga er ég farin að velta því fyrir mér að nú hljóti gallinn að vera kominn til Akureyrar, veit að það eru daglegar ferðir á milli og hún fór með gallann rétt uppúr hádegi á Pósthúsið. En jú, hún flettir upp nafninu mínu þegar ég fer á Pósthúsið og finnur ekki neitt. Þá fer ég að efast um að stelpan hjá Theo hafi sent hann strax, en hún segir mér að ég geti séð það á miðanum og ábyrgðarnúmerinu sem hún gaf mér upp hvenær þetta er skráð. Það passaði allt, samdægurs. Ég reyndi að bíða róleg og eftir 5 daga var hann ekki enn kominn og ég búin að fara tvisvar niðrá Pósthús. Eftir rúmlega viku hringdi Theo í mig og sagði mér að það hefði verið hringt í hana og pakkinn væri í Reykjavík því þau hefðu endursent hann frá Akureyri. Fleh, samt sáu þau enga skráningu ! Sögðust ekki finna mig, samt var heimilisfangið 100% rétt og ef ég var ekki heima, á þá ekki að skila eftir tilkynningu svo ég geti náð í þetta ? Þau sendu þetta aftur hingað á Akureyri og það var liðin rúmlega 1 1/2 vika þegar ég loksins fékk gallann.

Annað dæmi : Mamma sendi bók til mín fyrir 4 dögum síðan, hún er ekki ennþá búin að skila sér hingað til Akureyrar. Finnst það frekar slöpp þjónusta verð ég að segja. Núna er nefnilega fimmti dagurinn að líða.

Þriðja dæmi : Systir hans Steinó, Víví, sendi afmælisgjöf til hans fyrir rúmlega tveimur vikum síðan frá Bretlandi. Pakkinn er nú loksins kominn til Íslands, en vanalega hefur þetta tekið innanvið viku þegar hún sendir. Jú, Hanna Jóna tilkynnti Steinó það að það væri komin tilkynning heim. Steinó fer á Pósthúsið í gær til að athuga með pakkann, þá finnur hún það - í tölvukerfinu þeirra blessaða - að pakkinn sé í Reykjavík ! Hann er skráður á Akureyri, afhverju kemur hann ekki á Akureyri ? Konan sagði að það væri gert stundum, en ekki alltaf. Það sem hann þyrfti að gera núna væri að fara heim og ná í tilkynninguna, eða senda þeim mail, með upplýsingum um hann og síma og leyfi fyrir því að þau opni pakkann til að athuga hvort þetta sé tollvara. Þau vilja líka að hann sendi reikninginn fyrir vörunni ! Halló, þetta er afmælisgjöf ! Hún ætli svo að faxa þetta suður. Afhverju geta þau ekki bara sent þetta norður á Akureyri ? Það eru líka tollmenn hérna sem geta skoðað þetta. Aldrei að vita hvað þeim dettur í hug að taka uppúr pakkanum, hvað veit maður. Nee, svo ætla þau að senda þetta norður eftir allt þetta vesen. Hún sagði að þetta tæki svona sirka viku. Þá er þetta búið að vera 3 vikur á leiðinni, væri alveg eins hægt að senda þetta með skipi !

Vildi bara koma þessu til skila, finnst þetta arfaléleg þjónusta hjá Póstinum. Í seinustu þrjú skipti sem ég hef farið þarna inn og átt von á einhverju, þá er alltaf eitthvað vesen hjá þeim. Gjörsamlega dautt liðið þarna í afgreiðslunni hérna á Akureyri, svo slow að það hálfa væri mikið meira en nóg. Og labba alltaf að tölvunni og reyna að fletta einhverju upp þar, ef pakkinn er kominn þá er hann í HILLUNNI fyrir aftan þær - hvernig væri að leita þar bara ?

* Ein pirruð sem vill bara fá hlutina senda með Eimskip / Samskip héðan í frá *

15. febrúar 2008 klukkan 12:54
Linda Björk Gunnarsdóttir
4 athugasemdir
05febrúar

Í fréttum er þetta helst ..

Þar sem ég hef ekki bloggað síðan á seinasta ári ætla ég að byrja á því að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir það gamla, og svo ætla ég að skella inn afsökunarbeiðni fyrir því hvað það er langt síðan að ég henti nokkrum línum á ykkur. Þið verðið því bara að taka því að ég hafi frá miklu að segja núna.
 
Hátíðirnar voru æðislegar. Við vorum bara róleg í faðmi fjölskyldunnar, gjafirnar voru æðislegar, maturinn var frábær og við höfðum það bara kósý tvö heima um jólin. Áramótin voru svo tekin frekar rólega líka, Sædís var hjá okkur, við borðuðum öll hjá tengdó og svo komu þau til okkar í kaffi og skutu svo upp með okkur. Steinólfur ruglaði endalaust í ömmu sinni, greyið konan. Hann nánast gat sannfært hana um að það væri lent geimskip í garðinum, það sem drengurinn lét ekki útúr sér. Ég var alltaf að sussa á hann "Steinólfur þó". Honum fannst það geðveikt fyndið. Við skutum frekar mikið upp og styrktum að sjálfsögðu björgunarsveitirnar en ekki einhverja no-name-gaura í fjörtíufetagámum.

Það er komin snjór á Akureyri, já - það var orðið dálítið langþráð. Á meðan það snjóaði í Reykjavík, þá var blíða á Akureyri. Hræðilegt tímabil í tveimur orðum sagt. En um helgina fórum við á sleða og það var megagaman fyrir utan það að mér var orðið dálítið kalt eftir fimm tímana. Var svo ljóskuleg að fara beint í heitt bað og svíða útum allt. Lá við að ég grenjaði af sársauka, gerði þetta líka seinasta vetur - gáfaða ég. Svo þegar sársaukinn var liðinn hjá jók ég hitann í baðinu, laggðist á hliðina með hálsinn yfir baðbrúnina og hausinn á hvolfi oní handklæðið sem lá á bastkörfunni við hliðiná baðinu. Steinsofnaði. Vaknaði við það að ég gat varla kyngt því ég var að kafna þarna hangandi.

Fyrst ég er byrjuð, þá ætla ég að segja ykkur frá öðru ótrúlega heimskulegu atviki. Stundum er nefnilega dálítið gaman að hlæja að sjálfri sér. Ég fór með Steinó til Keflavíkur um daginn og á bakaleið stoppuðum við í Select uppá Höfða til að pissa og kaupa eitthvað að drekka áður en við leggðum af stað. Ég fór á klósettið - merkilegt hvað allt kjánalegt af mér tengist baðherbergjum núna - en allavegana, þá var þar eitthvað nýtt tæki. Þetta var handþurrkunartæki. Ég horfði á það meðan ég sat þarna í stórum geymi, og skoðaði notkunarleiðbeiningarnar sem voru á því. Velti því fyrir mér hvort ég ætti að þora í þetta þegar ég myndi þvo á mér hendurnar. Maður átti að setja hendurnar oní tækið uppað úlnlið, og draga þær svo rólega uppúr. Hvað haldiði ? Ég keyri trukk en þorði ekki að nota handþurrkunartækið, og hélt mig bara við tissjú. Ég fór að ímynda mér á fullu að tækið myndi klippa af mér hendurnar við úlnlið eða ég myndi festast þarna inná klósettinu með hendurnar oní tækinu. Hvað er að mér ?!

Steinó hefur komist að því að ég noti setninguna "Þetta er það ljótasta sem fyrir finnst" aðeins of mikið. Núna bara á síðastliðnum tveimur vikum er ég búin að benda honum á nokkrar gerðir bíla, felgur og púströr svo dæmi séu tekin. Dúddi á afmæli á öskudaginn og verður 1 árs kríli. Steinó á afmæli á föstudaginn næstkomandi og verður 35 ára gamall - hann drepur mig eflaust þegar hann kemur heim fyrir að setja "gamall" þarna fyrir aftan. Ég á afmæli 10. nóvember og verð þá 22 ára ung ! Já fínt, sem minnir mig á það. Hvernig skyldi vera að eiga afmæli 29. febrúar, s.s. á hlaupári ? Skyldi maður fá að velja afmælisdag alla daga nema fjórða hvert ár ?

Skondinn skítur !
Það sem er líka skondið er að mér tókst loksins að drulla bloggi af stað fyrir næsta ár !
Til hamingju með það, ég.
05. febrúar 2008 klukkan 00:54
Linda Björk Gunnarsdóttir
3 athugasemdir
24desember

Jólin koma ..

Við erum búin að skreyta heimilið okkar eins vel og fallega og okkur langar til að hafa og finnst það frábært. Kláruðum að setja svart veggfóður í kringum rúmið okkar í gærkvöldi, og er það með eindæmum glæsilegt. Jólatréð í stofu stendur með fullt af pökkum undir sér, og ég er ekki frá því að það séu nærri þrjátíu pakkar bara handa okkur tveimur undir því. Einn pakki er þar handa Sædísi, en vonandi kemur hún seinna í kvöld í heimsókn til okkar og opnar hann, en hún fékk annan pakka með sér heim til sín líka.

Í þessum töluðu orðum eru nokkrar mínútur þangað til að við tökum hamborgarhrygginn uppúr pottinum og setjum hann inní ofn þar sem hann verður í hálftíma og þá er hann til. Allt annað er til, kéllan henti svo á marengstertu áðan ef við fáum nú gesti á morgun, og mikil tilhlökkum hérna að borða góðann mat og opna pakkana. Steinó var að stinga uppá því að opna pakkana fyrir matinn og borða bara í kvöld, en ég tek það nú ekki alveg í mál. Þegar ég er búin með þetta blogg skellum við svo Dúdda litla í jólabað svo hann verði nú fínn og sætur þegar jólin ganga í garð. Svo er bara tími til kominn að taka sig sjálfa til, á eftir að mála mig og fara í betri föt. Þetta kvöld verður vonandi æðislegt, enda ekki við öðru að búast.

Okkur hjúunum langar til þess að nota tilfefnið og óska ykkur öllum gleðilegra jóla.
Megið þið öll hafa það sem allra allra best yfir hátíðina sem nú er að ganga í garð.
Vonandi borða allir á sig gat, njóta þess að liggja í leti og gera eitthvað skemmtilegt í faðmi fjölskyldu og vina.

Með jóla- og ástarkveðju,
Linda Björk, Steinó, Sædís og Dúddi.

24. desember 2007 klukkan 17:16
Linda Björk Gunnarsdóttir
Engin athugasemd
22desember

Jólin koma & kéllan í Bílar og Sport

Ætla að byrja á því að segja ykkur hvað ég þoli ekki þegar fólk getur ekki skrifað undir nafni og setur í staðinn kannski : "Skiptir ekki máli" - Algjörlega óþolandi. Viljiði vinsamlega ekki gera þetta inná minni síðu, takk fyrir.

En já, jólin eru að koma og það er gjörsamlega brjálað að gera í vinnunni í alla staði. Ég er búin að vera á fullu að svara í símann fyrir helling af fyrirtækjum og það gengur bara mjög vel. Ótrúlegt hvað fólk verður meira og meira pirrað eftir því sem nær dregur að jólum, það er einfaldlega eins og jólin breytist úr hátíð ljóss og friðar í hátíð stress og skulda hjá sumum. Það eru svo margir sem eru svo seinir í öllu saman, varan þeirra uppseld sem þau ætluðu að kaupa og annað og svo lætur fólk allann pirringinn bara bitna á saklausu fólki. Alveg ótrúlegt, í staðinn fyrir að huga bara að hlutunum fyrr - ekki 5 dögum fyrir jól. Alfarið þeirra vandamál. However, þá er ég búin að skreyta og gera fínt, á reyndar eftir að taka til og við ætlum að setja upp veggfóður þegar ég er búin í vinnunni á eftir. Ætlum að setja svart veggfóður eins og ramma í kringum rúmið þannig að það virki eins og rúmgafl, það verður bara flott.

Við Steinó verðum bara tvö ein um jólin, en við ætlum bara að hafa það kósý. Ætlum að elda okkur bara saman í rólegheitunum hamborgarhrygg og horfa svo á eitthvað fínt sjónvarpsefni úr imbanum og opna pakkana okkar. Ætli við geymum ekki eitthvað af þeim til að opna með Sædísi, en hún ætlaði allavegana að kíkja smá til okkar. Hún verður svo hjá okkur um áramótin, og við verðum kannski öll bara hjá tengdó. Það verður eflaust fínasta stemming.

Kéllan er í nýjasta tölublaði Bílar og Sport - TRUKKAR. Þar er mynd af mér og smá um mig og svona örlítill texti um hitt og þetta. Spennó, sá blaðið í gær og var bara mjög ánægð með það. Gaman að þeir hafi tekið sig saman og haft eitt svona blað tengt trukkum, margir segja að þetta sé eitt besta blaðið þeirra í nokkuð langann tíma - sem er reyndar bara töff ! Ætlaði bara að henda smá línu inn, allir að kaupa blaðið.
22. desember 2007 klukkan 15:31
Linda Björk Gunnarsdóttir
1 athugasemd
06desember

Nú ætla ég að pústa ..

Ég veit, ég veit, ég veit. Ég er búin að standa mig ömurlega í blogginu undanfarinn mánuð. Ástæða þess er helst sú að ég finn ekkert skemmtilegt efni til að tjá mig um en samt er alltaf eitthvað að gerast sem maður hefur skoðun á. Ég er nefnilega að reyna að hafa þetta blessaða blogg mitt þannig að ég segi ekki bara "ég fór í vinnuna í dag og það var fínt" heldur langar mig til þess að reyna að hafa þetta svolítið á málefnalegu nótunum í bland við hið daglega líf mitt.

Mig langar í íbúð með bílskúr. Verðið er bara svo hátt að manni ofbýður. Ég er samt alltaf vel vakandi fyrir því sem er til sölu, hvar er verið að byggja nýtt og hvað er búið að vera lengi í sölu og hvort hægt væri að prútta og svona. Svo kemur að því að reikna hver afborgunin af 20-25 milljónum er á mánuði og það er bara farið að slaga í 120-170 þúsund kall - sjokk ! Þegar við kíkjum svo á rúntinn að skoða hverfin hérna og hvernig er búið að skreyta hér og þar þá fer ég alltaf að velta því fyrir mér hvernig í ósköpunum fólk hefur efni á því að vera að kaupa sér þessi risastóru einbýlishús og byggja. Við erum að tala um hús sem eru að kosta einhverjar 40 milljónir eða meira. Annaðhvort hlýtur fólk að hafa hagnast geðveikt á gamla húsinu sínu eða það er bara með grilljón á mánuði til þess að höndla einhverjar afborganir á bilinu 250-350 þúsund. Ég held að við Steinó séum nú ekkert með neitt slæm laun á mánuði, bara svona nokkuð normal. En jesús, bara það að hugsa um 120 þúsund á mánuði í afborgun fer alveg með mann.

Það er mikið búið að tala um það að fólk á meðallaunum hafi ekki í sig og á. Spá- og vitsmönnum í fjármálabransanum finnst hinsvegar ótrúlegt hvað fólk á Íslandi skuldar mikið, að meðaltali sé hver íbúi landsins með 200 þúsund í yfirdrátt og svo sé fólk með bílana sína á láni, húsið og leiktæki - ef þau eru til staðar. Þeir bara skilja ekki allar skuldirnar sem fólk er með á herðum sér. Mér finnst hinsvegar vanta inní umræðuna hvernig allt er í dag. Lán fara óðum hækkandi, vextir fara hækkandi, öll vara fer hækkandi, bensínverð er það hæsta í heiminum og er komið útí algjört rugl og svo finnst þeim skrítið að margir séu gjörsamlega að drulla uppá bak peningalega séð. Þetta hækkar allt nema launin, og er virkilega ætlast til þess að þegar allt fer hækkandi nema launin að fólk hafi efni á öllu sem það þarf að borga ? Er svo bitur útaf þessu. Auðvitað enda allir í því að eiga ekkert sparifé og þurfa að taka yfirdrátt til þess að eiga fyrir seinustu vikunni í mánuðinum og sú tala fer bara uppá við.

Eins með þennan blessaða skatt okkar. Það er alveg heill hellingur af fólki sem býr á götunum og hefur ekki húsaskjól og týnir mat uppúr ruslatunnum, sáum það nú í sjónvarpinu um daginn með fólkið sem svaf í Laugardalnum í tjaldi. Hluti af okkar peningum, laununum okkar, fer í það að hjálpa svona fólki og byggja upp vegi og borga bíla fyrir ráðherrana. Þessi skattpeningur er alltof mikill á mánuði, og það fara alltof margir vinnutímar í það að borga til skattsins. Þessi peningur er líka alltof alltof mikill á mánuði þegar launin mín/okkar eru að fara í fólk sem nennir ekki að vinna, fólk sem býr sér til veikindi til þess að fara á bætur og lifa á laununum okkar sem nennum ekki að vinna á heiðarlegann hátt. Jú, í fínu lagi með fólk sem er eitthvað að í alvöru og getur bara ekki unnið. Það angrar mig svo að sjá fólk sem ekki þykist geta unnið útaf bakinu eða löppunum og er svo úti að hlaupa einhverja kílómetra á hverjum degi, stundar fótbolta og ég veit ekki hvað og hvað, tala nú ekki um fólkið sem býr sér til vinnuslys. Afsakið orðbragðið, en þvílíkur aumingjaskapur. Að nærast á launum annars fólks sem vinnur dag og nótt til þess að hafa nægilega afkomu svo þau geti séð sér og sínum fyrir mat og þaki yfir höfuðið. Ef það væri minna tli af svona liði myndum við sem nennum að vinna kannski borga minna í skatt og sjá meira af laununum okkar fara í okkar eigið veski en ekki einhvers annars sem liggur í Lay-Z-Boy heima hjá sér og glápir á Imbann.  
06. desember 2007 klukkan 12:06
Linda Björk Gunnarsdóttir
6 athugasemdir
12nóvember

Þúsund ..

.. þakkir fyrir afmæliskveðjurnar.

Ég átti mjög góðann afmælisdag. Steinó píndi mig með því að vera búinn að setja pakkann á náttborðið mitt kvöldið áður en ég átti afmæli, svo ég varð að fara að sofa við hliðiná pakkanum - gjörsamlega að kafna úr forvitni. Morguninn eftir opnaði ég hann samt og í honum var alveg ótrúlega fallegt hálsmen sem ég fíla í botn frá Studio6. Svo komu hann og Sædís heim með blómvönd og vekjaraklukku sem lýsir í loftið - algjör snilld og þvílíkt þægilegt.

Ég hafði mig alla til við að baka - þvílíkt húsmóðurleg. Bakaði marengstertu í fyrsta skipti á ævi minni, botnana, karamelluna og alles og hún var líka svona þvílíkt góð. Peruterta varð líka fyrir valinu eins og á öllum afmælunum mínum síðan ég fæddist. Fjölskyldan hans Steinó kom í heimsókn og við áttum góða stund saman. Fékk ótrúlega flotta og hlýja 66°Norður vettlinga frá tengdó og svo fékk ég mjög handhæga tösku, eyrnalokka og augnskugga frá Óskari og Katý. Alveg bullandi ánægð með allar gjafirnar mínar.

Núna er ég bara í vinnunni að drepast úr þreytu ! Veit ekki hvað er að mér eiginlega, varla búin að ná að halda augunum opnum í allan dag. En þetta fer að styttast, fer að styttast - verð búin eftir nokkrar mín. Ætlaði bara að henda inn einu stuttu bloggi í tilefni afmælisdagsins og þakka öllum fyrir mig.
12. nóvember 2007 klukkan 14:59
Linda Björk Gunnarsdóttir
1 athugasemd

Auglýsing