Gellurnar sameinast !
Já, við höfum sameinast nokkrar skvísurnar, ég, Rósa Vigdís, Sigrún Ingveldur og Sigrún Björk, en við erum allar trukkagellur ! Við ákváðum því að búa til síðu saman sem á að fjalla um þetta starf okkar og hvernig er að vera stelpa í þessum bransa, erum duglegar að koma inn með myndir og svona og þetta er bara orðið heljarflott þó svo að við séum bara nýbúnar að opna.Mæli endilega með því að þið kíkið á þessa síðu : www.gellursemtrukka.bloggar.is en hún er án efa HOT ! Ég mun samt halda áfram að sinna þessari síðu þó svo að hún hafi verið nokkuð dauð undanfarið, en það er bara vegna þess að við höfum verið að sinna hinni síðunni.
Með kveðju,
Linda Björk
18. apríl 2008 klukkan 22:09
Linda Björk Gunnarsdóttir
Linda Björk Gunnarsdóttir