Við kynntumst í sumar þegar ég var að keyra hjá Samskip, en hann vann líka hjá Samskip í sumar, og er reyndar búinn að vinna þar í rúm 11 ár. Við byrjuðum á því að mætast einhversstaðar í Öxnadalnum, þegar hann var á leiðinni á kassabíl með vagn frá Egilsstöðum til Reykjavíkur og ég var á leiðinni heim á Akureyri úr Víðihlíð. Mjög stuttu seinna var kjéllan einnig á leiðinni úr Víðihlíð þegar hún var á ofsaferð sinni og lenti á einhverjum seinfara kassabíl upp Öxnadalsheiðina - þetta gekk náttúrulega ekki ! Hvað var að þessum manni ? Af hverju í ósköpunum gefur hann mér ekki stefnuljós um að fara frammúr - ég ætla ekki að hanga á eftir þessum letihaug í alla nótt sko ! Stuttu seinna hringdi síminn : "Ætliði að vera þarna í allt kvöld ?". Þá kom kappinn með þá skýringu að stefnuljósin á vagninum væru biluð - DAHH, og ég brunaði frammúr. En afhverju hringdi hann í mig en ekki bílinn sem var á undan mér fyrir aftan hann ? Hmm - stórfurðulegur dúd og meira en það !
Þetta voru mín fyrstu kynni af honum Steinó - hann sagði að hann vissi bara ekki símann í hinum bílnum sem var á eftir honum - Haha, leim ekskjús ! Í þokkabót búinn að vinna hjá þessu fyrirtæki í 11 ár, og alltaf með sömu gömlu símana og númerin. En nóg með það, hann varð svo forvitinn um ljóshærðu stelpuna sem var að keyra hjá Samskip, að hann varð að hringja aftur í mig þegar hann fór næstu ferð. Þannig byrjuðum við að spjalla saman, höfðum einfaldlega ekkert betra að gera þegar að við vorum að keyra, en að tala um daginn og veginn og allt þar fram eftir götunum ! Það var mjög skemmtilegt og stytti manni stundir, ég sagði honum frá því hvernig ég fór að því að næstumþvíveltagrindinnioggámnum í Víðihlíð - en hann hafði náttúrulega heyrt af þessu öllu saman. Slúðurkerlingarnar í saumaklúbbunum sem starfræktur er í reykkompum Samskipshúsakynna láta sko ekki svona lagað fara framhjá sér - og ekki heldur það að við Steinó værum að tala saman. Það var náttúrulega mjög svo spennandi, um að gera að rugla svolítið í pabba hans Steinó sem ég hafði nú fíflast rækilega með í allt sumar - og spyrja hann hvort hann væri að eignast tengdadóttur ! Það var alltaf ægilegt stuð þegar ég fór austur að sækja gáma og mikið talað og mikið ýkt - en auðvitað varð maður að halda kjaftasögunum uppi og leyfa kjaftakerlingunum að nærast á einhverju - svo maður ruglaði í þeim á móti.
Einhvernveginn héldum við áfram að tala saman, bara sem kunningjar og vinir, og það var mjög skemmtilegt, ekki margir í yngri kantinum að keyra sem maður kannast við. Við þrifum annars lagið bílana okkar saman þegar Steinó kíkti á Akureyri, æði að hafa einhvern til að þrífa með þegar að manni leiddist. Vinasambandið okkar þróaðist svo þannig þegar við Heimir hættum saman að við fórum að rúnta meira saman, spjalla meira saman og svona eins og gengur og gerist. Nokkrum vikum seinna fór svo kappinn að tjá sig og spyrja mig hvort ég vildi ekki fara í samband með sér. Alltaf neitaði ég til að byrja með og hann bað og bað, sem mér fannst reyndar bara sætt - gaman að láta ganga á eftir sér. Að lokum gat ég svo ekki sagt nei lengur, því það var einfaldlega ekki það sem ég vildi - hjartað fékk að ráða og við byrjuðum saman.
Steinó hélt áfram að keyra frá Egilsstöðum, til Reykjavíkur og til baka og við vorum saman. Hann dró mig með sér annarslagið, sagði að það væri svo leiðinlegt að vera án mín og ömurlegt að keyra svona einn þegar hann væri búinn að venjast því að hafa mig alltaf með. Hvort sem ég kom með honum eða ekki, þá keyrði hann alltaf frá Egilsstöðum til Akureyrar þegar hann var búinn í vinnunni, en hann fékk einn frídag inná milli í vikunni, fór tvær ferðir suður í viku, og kom alltaf á Akureyri um helgar og í millifrídeginum. Hann laggði af stað til mín þó að hann væri búinn að keyra í 9-12 tíma og þó að klukkan væri á bilinu 4-7 um nóttina. Svo laggði hann af stað eftir góða dvöl á Akureyri, aftur til Egilsstaða, og keyrði þar með yfir 1000 km aukalega á viku bara til að hitta mig - mér fannst þetta xtra sætt .. !
Þetta gat svo ekki gengið þannig mikið lengur - kostaði mikið, svo kallinn ákvað að hætta að keyra fyrir austan og flutti til mín. Við búum núna í kósý íbúðinni í Lækjartúni 16, þar sem okkur líður svona líka rosalega vel saman. Það er mikið hlegið, mikið kúrt og knúsað, kysst og elskað - allann daginn .. ! Það er alveg æðislegt - veit ekki hvað ég met það mikils, en við getum varla án hvors annars verið ! Mér líður illa þegar ég er ein heima og við söknum hvors annars þegar við erum í sundur. Það skortir ekki hamingjuna á þessu heimili - og þó við séum bara búin að vera saman í nokkra mánuði, vona ég svo innilega að við eigum bjarta framtíð saman og verðum lengi saman.
Að vísu hlýtur þetta samband að hafa verið svolítið stökk fyrir fjölskylduna mína, þar sem Steinó er nú fæddur árið ´73 og þar með 13 árum eldri en ég. Mér finnst það æðislegt - fíla gamla minn í tætlur ! Hann á 12 ára dóttur, Sædísi, og hún er alveg rosalega vel upp alin og æðisleg stelpa og við erum held ég að verða hinar bestu vinkonur - við skemmtum okkur mjög vel saman og hún má koma hvenær sem hún vill. Við gerum mikið grín að gamla, og hann gerir grín að sjálfum sér og við hlæjum að honum. Já, ég kalla hann gamla minn, en samt er hann svo klikkað sætur og unglegur, tala nú ekki um hvað hann er ungur í anda ! Fílaða ! Hann er ótrúlega skemmtilegur og æðislegur kærasti - sá besti sem hægt er að kjósa sér þó hann sé aðeins minni en ég haha !
Steinó er núna farinn að vinna hjá Eimskip, en ég vona að ég fari að vinna þar líka í sumar. Þá munum við skötuhjúin krúsa um alsæl á nýjum R500 Scanium, í hæstu hæðum, skælbrosandi og sátt ! Já, ég náði mér í trökker - hot trökker !
Elskan mín, þú ert yndislegur - FULLKOMINN !
Þú gerir lífið svo skemmtilegt, þú skemmtir mér og lætur mér líða vel - Æðislegt líf ! Vonandi nýtur þú þess líka !
Always & Forever - Until the wheels fall off !
Love you MOST :*
Þín Linda Björk !